Viðar Örn Línberg Steinþórsson

Mig Dreymdi Draum

24. nóvember 2008

Það er nú þannig með þessa drauma að maður man ekki alveg allt saman og endar ná ekki alveg saman.

Það var allavega þannig að ég var í aftursæti í bíl í einhversskonar bílaröð. Allt í einu þurfti ég að fara útúr bílnum. Þegar ég var kominn útúr bílnum sting ég hausnum aftur inní bílinn og viti menn.. í skottinu sat Davíð Oddsson og einhver kona.
Ég gjörsamlega missi mig og læt Davíð heyra það - svoleiðis rausa yfir hann.
Við hliðina á Davíð er tölvuskjár. Það er bluescreen í gangi á honum.
Nema að skjárinn er rauður!
Síðan geng ég í burtu.

Er einhver klár í draumráðningum?

Bjaddni - 24. nóvember 2008
..þú veist að þeir sem dreyma Davíð eru yfirleitt skilgreindir sem fæðingarhálvitar.

..nema náttúrulega að þetta hafi verið martröð, þá ertu bara óheppinn.
Viðar - 24. nóvember 2008
Takk fyrir það Bjaddni
vill enginn spreita sig á draumráðningu..?
Viðar - 24. nóvember 2008
Takk fyrir það Bjaddni
vill enginn spreita sig á draumráðningu..?
Þóra Dögg Júlíusdóttir - 25. nóvember 2008
Að öskra svona á einhvern og rauði liturinn myndi ég nú telja að væri niðurbæld reiði sem þú þarft að koma á yfirborðið kallinn minn, eru menn að missa geðheilsuna?
Er ekki kominn tími til að gerast smá kelling og opna sig fyrir sínum nánustu og eða beita reiðinni hér á blogginu ;)

p.s. Danni segir þér að passa þrýstinginn.
Viðar - 5. desember 2008
já.. ég þarf að fara að rífast í fólki meira.. það er alveg á hreinu
Nafn
Netfang
Skoðun
Lykill
(til að staðfesta að þú sért manneskja)
Hver er síðasti stafurinn í fornafni mínu?
(Fornafn mitt er Viðar) ;)