Viðar Örn Línberg Steinþórsson

Fyrst að Elvar tók sig til

23. janúar 2008

langt síðan ég hef kíkt hér inn.. og örugglega þú líka.
Ég ætla ekkert að vera að afsaka mig neitt en það er bara búið að vera svo mikið að gera, maður er búinn að hafa lítinn frítíma, allir hættir að blogga og svona..
En fyrst að Elvar fór að blogga þá sér maður sig tylneyddann:) en ég ætla að reyna að vera öllu jákvæðari en hann.

Ég er búinn að vera alveg massa slakur að taka myndir undanfarið.
Tók mig nú reyndar til um daginn og stofnaði flickr síðu! tékkið á henni.

Það er slatti búið að ske síðan ég bloggaði síðast enda kominn góður tími síðan.
m.a.
+ Aiwaves! Snilld eins og vanalega, reyndar missti ég af slatta af hátíðinni vegna vinnu.
+ Fluttur til Ægis, ætli sé ekki hægt að segja að þetta sé ágætis sambúð. (ekki fá neinar ranghugmyndir!)
+ Kláraði skólann, ég er ekki kominn með gráðurnar ennþá því ég tek ekki prófin strax.
+ Kallinn að færa sig uppá skaftið í vinnunni. Kominn með mikla ábyrgð og alveg heimikið að gera.
+ Ennþá á sumardekkjunum.
og eitthvað fleira...
Ég ætla að hætta núna svo ég hafi eitthvað að skrifa næst.
Þú mátt endilega skella inn skoðun eða eitthvað bara svo ég viti nú hvort að einhver les þessa síðu..:)

Palli Heinesen - 26. janúar 2008
Já hæ, ég les, ákvað bara að bíða í þrjá daga áður en ég kommentaði ;)
Skil þig með letina við að blogga vegna anna í vinnu ;)
Við sjáumst um næstu helgi á blóti, er það ekki annars??
Viðar - 26. janúar 2008
Ójá við sjáumst sko klárlega á blótinu
Ægir - 28. janúar 2008
þetta verður gott blót..

btw. Viddi, Elvar er að rústa þér..
Elvar - 31. janúar 2008
Herru kallinn ég er nú bara raunsær ekki neikvæður;)
Nafn
Netfang
Skoðun
Lykill
(til að staðfesta að þú sért manneskja)
Hver er síðasti stafurinn í fornafni mínu?
(Fornafn mitt er Viðar) ;)