Viðar Örn Línberg Steinþórsson

Update

5. október 2007

Það er mikið búið að vera í gangi síðustu misseri.

Ný vinna.
Ég sagði upp hjá Hive og hætti þar í lok ágúst og fór að vinna hjá Netheim ehf. Ég er mjög ánægður með að vera byrjaður hjá Netheim og hættur hjá Hive.
Sérstaklega er ég ánægður með að vera ekki lengur alltaf með pirrað fólk í símanum allann daginn sem þykist vita allt betur en maður sjálfur.
Það var nú samt alveg ágætt hjá Hive eða eins og maðurinn sagði; þetta starf væri frábært ef það væri ekki fyrir helvítis kúnnana

Ný íbúð hjá Ægi.
Ægir skellti sér á fasteignafyllerí um daginn og endaði með þessa líka fínu íbúð í vesturberginu í Breiðholtinu.
Hann fékk síðan lyklana afhenta fyrir nokkrum dögum og svo fékk ég copy af þeim líka þar sem maður er nú að fara að búa með kvikindinu.
Þóra verður bara að bíta í það súra ég að skuli að vera að flytja :)
Um helgina er síðan bara penslarnir mundaðir og slett hvítu á veggina.. ég kem til með að vera í fyrrverandi barnaherbergi þannig að málning er möst!

Skálkur á skólabekk
Ég fékk þá flugu í höfuðið um daginn að setjast á skólabekk.Ég skellti mér í skóla sem heitir NTV og MCSA gráðan frá Microsoft er markmiðið.
Fínasta nám þar á ferðinni en námið byggir aðallega á heimanámi og mér fynnst heldur langur tími á milli tímanna, heilar 2 vikur.

Myndir.
Ég henti inn nokkrum myndum frá afmælinu mínu og Salou ferðinni.

þóra dögg - 5. október 2007
Viddi minn það er sárt að missa þig en ég bít nú ekki í eitt né neitt súrt þar sem ég nú ekki mikið heima þessa dagan like u know ;) hehe en hey ekki tekst þér að slíta þig langt frá mér ...verður audda 2 min frá manni þannig he he he.... og eins og þú munir ekki sakna mín pínu pons kallinn minn knúsíknús
Nafn
Netfang
Skoðun
Lykill
(til að staðfesta að þú sért manneskja)
Hver er síðasti stafurinn í fornafni mínu?
(Fornafn mitt er Viðar) ;)