Viðar Örn Línberg Steinþórsson

Góð Menning

23. ágúst 2006

Menningarnóttin var skrambi góð bara.
Við nokkrir gaurar byrjuðum kvöldið á að fara út að borða, á Tapas.
Pantaðir voru nokkrir Suður Amerískir smáréttir sem voru nokkuð öðruvísi en maður á að venjast þegar maður fer út að borða.
Það heppnaðist mjög vel, maturinn mjög góður og þjónustan yfir meðallagi.
Síðan lá maður á meltunni í "koníakstofunni" og sötraði kaffi og koníak (segir sig nokkuð sjálft).

Þá var alþjóðlegu menninguni lokið og Íslenska menningin tók við, rölt um miðbæinn og drukkið sem enginn væri morgundagurinn.
Það eitt og sér getur ekki endað vel.. allur pengingur kláraðist, síminn týndist og þynnka laaangt fram eftir viku.
Spurning að endurskoða þessi endalausu pointless fyllery..

Annars vil ég þakka strákunum fyrir fínasta kvöld.

Silla - 23. ágúst 2006
Takk fyrir seinast;) Já auðvitað mætti ég í menninguna...en ekki hvað!
Ægir - 23. ágúst 2006
Þetta var alveg magnað ;)
Bjaddni - 23. ágúst 2006
þokkafull og seiðandi þessi síðasta mynd frá menningarnótt...
Nafn
Netfang
Skoðun
Lykill
(til að staðfesta að þú sért manneskja)
Hver er síðasti stafurinn í fornafni mínu?
(Fornafn mitt er Viðar) ;)