Viðar Örn Línberg Steinþórsson

Fríið búið

4. júlí 2006

Þá er fríið búið og maður mættur til vinnu.
Síðasta vika er búin að alveg ótrúlega afslöppuð í sveitasælunni.
Lítið sem ekkert GSM samband og bara RÚV í boði í sjónvarpinu, fínt að fara úr stressinu í borg óttans og slappa af… ekki það að ég sé að deyja úr stressi að eðlisfari en það er bara svo gott að gera ekki neitt og hvíla sig á eftir.

Næstu vikurnar er bara vinna framundan enda allt að verða vitlaust í vinnunni.
Og auðvitað glápa á HM

Sumarið er tíminn og það er spurning hvort maður eigi að taka allar helgarnar með trompi það sem eftir lifir sumars… spurning.. enda fullt af litlum útihátíðum útum allt land um hverja helgi.

bjaddni - 4. júlí 2006
jæja! þú rétt nærð undan og úrslitunum! iss..!

tekur allavega smá tromp næstu helgi, í bænum!! ;)
Nafn
Netfang
Skoðun
Lykill
(til að staðfesta að þú sért manneskja)
Hver er síðasti stafurinn í fornafni mínu?
(Fornafn mitt er Viðar) ;)