Viðar Örn Línberg Steinþórsson

Mögnuð Jónsmessuhátíð

26. júní 2006

Jónsmessuhelgin á Hofsósi um nýliðna helgi var vægast sagt alveg frábær.
Mjög gott veður var alla helgina og mætingin hefur aldrei verið betri.

Á föstudaginn var fólk að tínast í bæinn fram eftir degi þannig að það var bara slappað af í blíðunni.
Um kvöldið brunuðum við Ægir, Binni, Elvar Jói, kiddi og Bjössi útí Hraun, Binni hafði planað að fara á snjósleðanum útá stöðuvatnið sem er við sveitabæinn.
Þegar á staðinn var komið skall á alveg bjálað logn þannig að sleðinn var græjaður og úr þessu þá var ekki bakkað með þetta.
Planið hjá honum var að fara útá vatnið, taka hring uti á vatninu og fara á sama stað í land aftur. Það tókst svona þokkalega hjá honum, reyndar náði hann ekki hringnum heldur varð hann að stoppa í fjörunni hinu meginn og taka af stað þaðan aftur. Það tókst og þetta var allt saman alveg massa töff hjá honum.
Eftir það var brunað útí Hofsós og hellt í sig.
Hópurinn hélt á Sigtún, sem er barinn í Hofsós, og þar var djammað og dansað þangað til staðurinn lokaði.
Venjulega þá fer fólk að sofa eftir að barinn lokar, eða fer í eftirpartý, en hópurinn sameinaðist um að fara í fótbolta á sparkvellinum.
Fótboltinn var hin mesta skemmtun, svona allaveg rétt á meðan á honum stóð.
Reglur voru algjört aukaatriði og það var tæklað eins og enginn væri morgundagurinn, Binni fór þar fremstur meðal jafningja.
Þegar ég vaknaði komu í ljós alveg hellingur af marblettum og opið sár á leggnum.

Laugardagurinn var tekinn snemma.
Um hádegisbil var mæting í grunnskólann þar sem nokkrir árgangar, sem voru í skólanum í gamla daga, hittust.
Byrjað var á því að skoða gömul myndaalbúm og gamlir tímar rifjaðir upp. Í stað þess að halda sig við upphaflega dagskrá á þessu bekkjarmóti var í snatri ákveðið að fara uppá knattspyrnuvöll og taka þátt í fótboltamóti.
Við rétt svo náðum í 7 manna lið og Ægir var vatnsberi eða öllu heldur bjórberi.
Við stóðum okkur eins og hetjur að mínu mati og höfnuðum í fjórða sæti. Enda vorum við átta í liði, dómarinn var með okkur í liði.
Eftir boltann fór reunion-hópurinn í ratleik, einskonar Amazing Race Hofsós. Þar var hlaupið um allan bæinn og okkrar þrautir voru leystar m.a. bjór drukkinn með trekkt, dekkjum raðað, leitað að eggi og það síðan spælt, farið á hestbak og kókosbollu kappát.
Fyrir ballið um kvöldið var hittingur heima hjá Ægi. Þar var sungið og trallað fram eftir kvöldi og síðan haldið áleiðis á ballið.
Ballið var vel heppnað, hljómsveitin Von spilaði og stóð vel fyrir sínu, eftir ballið var fjöldasöngur úti á tröppum þar sem Rúnar splilaði á gítar og það myndaðist góður hringur og mikil stemning.

Sunnudagurinn fór aðallega í það að vera þreyttur, bæði líkamlega og andlega.
Skemmtileg helgi senn á enda og gestir helgarinnar að tínast heim á leið.
Ég ætla hinsvegar að vera eitthvað áfram á norðurlandinu í faðmi afa og ömmu í sveitinni.
Myndirnar frá helginni fylgja í ljósmyndahorninu

Hafrún - 28. júní 2006
Hvaa? Akkuru vissi ég ekki af þessu? :)

Takk fyrir helgina annars! Klárlega árlegt! ;)
Svandís og Gyða - 4. júlí 2006
algjört snild þessi helgi ;) þurfum að fara að plana fljótlega annan hitting hérna í bænum.
ps: Viddi þú stóðst þig eins og hetja á baki :) Hvíti Riddarinn
Viðar - 5. júlí 2006
takk takk Svandís og Gyða *roðn*
Nafn
Netfang
Skoðun
Lykill
(til að staðfesta að þú sért manneskja)
Hver er síðasti stafurinn í fornafni mínu?
(Fornafn mitt er Viðar) ;)