Viðar Örn Línberg Steinþórsson

Fyrsta færslan

30. maí 2006

Já Fyrsta færslan, á þessari síðu er ætlunin að birta það sem rennur í gegnum hugann hverju sinni, tuða um það sem fer í taugarnar á mér, segja hetjusögur og birta myndir því til staðfestingar.

Síðasta helgi var viðburðarrík, vinna á laugardag, brunað í bústað um kvöldið eftir vinnu, þar sem Íris, Logi, Heiða, Óli og Ásta voru í bústað sem foreldrar Írisar eiga.
Þennann stutta tíma sem ég var þar var þó heilmikið fjör, allt sem góð bústaðar ferð þarf að hafa, singstar, fullt af spilum, hoppukastali (sem kom á óvart) og einfaldlega hörkustuð!
Ég vil benda á að þó að undirritaður hafi farið snemma að sofa þá hafði ég fulla ástæðu til þess!

Á sunnudagsmorgunn var vaknað aðeins of seint þannig að það var keyrt gjörsamlega eins og druslan dró í bæinn til að mæta í vinnu.
Sunnudagskvöldið var hálfgert laugardagskvöld þannig að það var aðeins kíkt á lífið í bænum, það var samt minniháttar.

Kristel Assa Adolfsdóttir átti afmæli í gær, mánudaginn 05/06. 19 ára gella!
! til hamingju með daginn Kristel !

Ásta Bjarnadóttir - 6. júní 2006
heh hafðiru hvað ?? Fulla ástæðu ? það er nú ekki þú að fara snemma að sofa þó svo að þú þurfir að mæta í vinnu daginn ettir en já takk fyrir skemmtilega ferð ;)
Nafn
Netfang
Skoðun
Lykill
(til að staðfesta að þú sért manneskja)
Hver er síðasti stafurinn í fornafni mínu?
(Fornafn mitt er Viðar) ;)