Viðar Örn Línberg Steinþórsson

Dagskráin á Jónsmessunni

13. júní 2009

Föstudagur.
18.45 Jónsmessuganga frá Stafnshóli í Hofsós undir leiðsögn Kristjáns Snorrasonar.

20.30-21.30 Kjötsúpa í Höfðaborg

22.00 Söngskemmtun í Höfðaborg. Þekktar dægurlagaperlur í flutningi sama hóps og fyllti Miðgarð í Sæluviku.
Opið hús fram eftir kvöldi þar sem Upplyfting heldur uppi stuðinu. 18 ára aldurstakmark.

Laugardagur:
10.00 Smalakeppni hestamannafélagsins Svaða

11.30 Kvennahlaup ÍSÍ frá Höfðaborg.

11.30 Fótbolti kvenna og karla.

13.00 Leiktæki og tjaldmarkaður við Höfðaborg.

15.00 Skemmtidagskrá á útipalli

16.30-18.30 Grillveisla við Höfðaborg.

23.00 Stórdansleikur með Geirmundi Valtýssyni! 16 ára aldurstakmark.

Ljósmyndasýning í Grunnskólanum.
Opnunartímarnir eru:
Fim 18. jún: 20-22
Fös 19. jún: 13-18
Lau 20. jún: 11-19
Sun 21. jún: 11-15

Skoðanir (0) | Bein slóð

Jebb

23. janúar 2009

Gleðilegt ár og sona!
jæja.. hvað er búið að gerast.. já.
Jólin og áramótin eru búin, það var allt saman fínt bara. Var hjá Pabba á jólunum og Hildu & co á Áramótunum.
Áramótapartýið var svo heima hjá Bjaddna og Danna -það var snilld btw.

Blessaðir mótmælendurnir eru í himnaríki núna. Loksins hafa þeir tækfæri á að láta eins og fífl án þess að löggan geri neitt sérstakt við því.
Ég er nú reyndar að spá í því að fara í bæinn á laugardaginn með eins og svosem tvö egg eða svo. Mér er svosem alveg sama hvert ég kasta þeim. Það er bara gaman að hafa gert það.

Ég sé fyrir mér þegar ég er orðinn gamall kall, svona í kringum árið 2060, þá kemur afabarnið mitt til mín og spyr:
Afi, tókst þú þátt í mótmælunum miklu árið 2009?
Ég svara:
Ójá, ungi laxmaður, þangað fór ég og kastaði eggjum og söng baráttusöngva gegn ríkisstjórninni.
Það voru sko spennandi tímar.

..skiluru?

Skoðanir (0) | Bein slóð

Bölvun vs. Kraftaverk

17. desember 2008

Ætli það sé ekki sami hluturinn?

Kraftaverk getur ekki gerst nema að allt fari til helvítis fyrst.

T.d.
Maður lendir í alvarlegu bílslysi og lamast.

Einn segir:
Þvílik bölvun! Hvað hefur þessi maður gert til að verðskulda þetta.

Annar segir:
Guði sé lof að ekki fór verr, þetta er kraftaverk.


Hvort er þetta bölvun eða kraftaverk?

Skoðanir (2) | Bein slóð

Besta Kreppuráðið

12. desember 2008

Besta Kreppuráðið er að gera einhvern fjandann af sér og fara í fangelsi í ca 2 ár. Þá er maður allavega með öruggt húsaskjól, vinnu og mat.

Skoðanir (6) | Bein slóð

Mig Dreymdi Draum

24. nóvember 2008

Það er nú þannig með þessa drauma að maður man ekki alveg allt saman og endar ná ekki alveg saman.

Það var allavega þannig að ég var í aftursæti í bíl í einhversskonar bílaröð. Allt í einu þurfti ég að fara útúr bílnum. Þegar ég var kominn útúr bílnum sting ég hausnum aftur inní bílinn og viti menn.. í skottinu sat Davíð Oddsson og einhver kona.
Ég gjörsamlega missi mig og læt Davíð heyra það - svoleiðis rausa yfir hann.
Við hliðina á Davíð er tölvuskjár. Það er bluescreen í gangi á honum.
Nema að skjárinn er rauður!
Síðan geng ég í burtu.

Er einhver klár í draumráðningum?

Skoðanir (5) | Bein slóð

Kreppugrín

18. nóvember 2008

Íslenski ráðherrann var á fundi sjávarútvegsráðherra Evrópuríkja þegar haldin var móttaka fyrir fundargesti. Íslenski ráðherrann hitti swissneska kollega sinn og spurði hann af hverju Swisslendingar væru með sjávarútvegsráðherra það væri jú engin sjór í kringum Swiss. Swissneski ráðherrann svaraði með annarri spurningu: Hvað eruð þið að gera með fjármálaráðherra?”

Skoðanir (0) | Bein slóð

Opið bréf til VR

7. nóvember 2008

Ég sendi VR athugasemd í gegnum heimasíðuna þeirra.
hún var svohlóðandi:

Góðan Dag.
ég var að velta því fyrir mér hvort VR mundi breyta um nafn? Mér sýnist Virðing og Réttlæti vera runnið ykkur úr greipum.
kv. Viðar

Ég fékk síðan skilaboð frá þeim í morgun sem sagði:

Ábending þín hefur verið uppfærð í ábendingarkerfi VR.
Staðan er nú: Búið
Vinnulýsingin er: Sent sviðsstjóra Samskipta og þróunarsviðs


Hehe

Skoðanir (2) | Bein slóð

Fyrr átti ég von á dauða

21. október 2008

Dagurinn er runninn upp sem ég átti aldrei von á!
Ég er ánægður með bankann minn - loksins þegar hann er farinn á hausinn

Hann semsagt borgaði mér til baka það sem hann tók útaf debetreikningnum mínum í leyfisleysi um mánaðrmót. Án þess að ég hringdi inn og minntist á þetta. Ég skil þetta ekki.

Ástandið í samfélaginu er semsagt alveg í rugli.. hver hefði trúað því að bankinn færi að endurgreiða eitthvað.
Hvað ætli gerist næst?

Skoðanir (0) | Bein slóð

Vantar Ást

15. október 2008

Stjörnuspá 15. okt

Meyja: Þú ert í úlfakreppu. Hvernig sem þú snýrð þér þarftu að færa fórnir. Best væri að leita að undankomuleið og þú munt finna þær. Ást er rétta svarið.

Nokkuð nálægt lagi.. núna vantar bara ástina

Skoðanir (0) | Bein slóð

Myndir - Hilda+Sölvi

14. október 2008

net

Bara láta ykkur vita að það er tengill á myndir úr giftingu Hildu og Sölva hérna hægra megin ;)

Skoðanir (1) | Bein slóð

Slæmir Tímar

13. október 2008

Pylsur:
Eitt það ógeðslegasta sem hægt er að leggja sér til munns.
Ég vann í bílalúgu í vinsælli sjoppu í Hafnarfirði í tæplega 6 ár og er algjörlega kominn með ógeð á pylsum, enda líklega búinn að setja á meira en 10.000 pylsur á þessum tíma. Það er nóg að finna lyktina – þá líður mér ílla.
Í gær, sunnudaginn 12. Október, þá var ég á ferðinni með Danna og Þóru og eitthvað þurfti að éta. Klinkið dugaði rétt svo fyrir einn i pullu þannig að það var farið í pylsuvagninn í Laugardal og látið sig hafa það.
Eftir góóóða bið, ca 15 til 20 mín, var búið að afgreiða þessa 2 sem voru á undan okkur. Ég fékk mér tómat, sinnep og steiktan – enda allt annað viðbjóðslegt hor. Bragðið á pylsunni kom mér ekki mikið á óvart, hún var vond.
Kreppan er greinilega skollin á með miklum þunga og lífið verður aldrei eins og það var.

Skoðanir (1) | Bein slóð

Á Þessum Síðustu og Verstu

1. október 2008

.. er gott að koma með góða viðskiptahugmynd.
Mín hugmynd er að stofna KAÐLABÚÐ! ultimate miljónahugmynd, svo býðst maður að sjálfsögðu að búa til snöru á endann gegn vægu gjaldi.

Neinei segi svona. Eru ekki allir hressir?

Skoðanir (1) | Bein slóð

Allt að gerast

15. september 2008

Ef það er ekki ástæða núna til að skrifa eitthvað þá er það sennilega aldrei.
Þetta er búið að vera nokkuð viðburðarríkt sumar held ég barasta.
Mamma hélt uppá ammlið sitt með pomp og prakt á hlíðarhúsinu 4, 5 og 5 Júlí. Það var slegið upp þessum fínustu tjaldbúðum og mannfjöldin gríðarlegur.. enda mættu öll systkinin.
Ég tók alveg þrefaldan helling af myndum sem koma inná myndasíðun við tækifæri.

Sumarfríið var fínt.
Írland og Oxegen var alveg öskrandi snilld. Þessi vikuferð til Írlands var alveg helvítis andskotans snilld.
Ég gisti á hosteli allann tímann. Það var áhugavert, var fyrst í fjögurra manna herbergi og svo 12 manna herbergi. Þetta var soldið mögnuð lífsreynsla og mér fannst ég vera algjör túristi. Svo var bara rölt á milli pöbba og drukkið í sig Írsku menninguna.
Fyrstu dagana í Dublin var ég með tveim strákum sem ég þekkti ekkert áður, Kidda og Dabba Vals. Það eru fínustu guttar, svo á föstudaginn kom restin af liðinu.
Oxegen var best í heimi. Ég nenni ekki að lýsa því neitt frekar.. jú nema hvað – Rage against the machine, REM, Justice, Prodigy, Kings of Leon ofl. ofl. ofl. hljómsveitir.
Snilldar partý með meira en 80 þúsund manns. Það var mjög sérstök írsk þjóðhátíðarstemning.. eða eitthvað svoleiðis.
Ægir og Bjaddni eru samkynhneigðir.

Hilda og Sölvi Giftu sig 6. September!
Athöfnin og veislan fóru fram í glersalnum í Kópavogi, það hefði ekki getað verið betra kvöld.
Ég tók helling af myndum sem bíða úrvinnslu.

Ég kíkti líka í bústaðinn til Þóru og Danna eina helgina í sumar, það var bara helv fínt að skella sér í pottinn og svona. Danni er svo þrítugur núna á fimmtudaginn, gemli gemli


Annars er 15. September í dag, þá á Viðar afmæli.

Skoðanir (2) | Bein slóð

Þessi Jónsmessa

24. júní 2008

Maður lét sig ekki vanta á Jónsmessuhátiðina á Hofsósi um helgina.
Það vantaði heldur ekki lýðinn á staðinn. Það var fjölmennt heim til Sollu og Finns og trallað þar með pásum alla helgina. Halli, bróðir Jóa, tók við af Jóa með að sofa hvar sem er. Kallinn sofnaði víst í einhverju moldarflagi við tjaldsvæðið.

Ég reyndar náði að næla mér í eitthvað kvefógeð og var hóstandi og slefandi alla helgina, síðan er ég búinn að liggja í rúminu síðan um helgina. Svo kom það í ljós að ég náði að smita a.m.k. bæði Jóa og Ægi.

Ég get síðan svarið það að ég sá alveg fullt af ísbjörnum þarna

Annars fer að styttast í sumarfríið hjá kallinum og svo er það Oxegen
í Júlí

Á að fara á Náttúru næstu helgi? ..eitthvað vit í þessu?
Ég verð seint talinn mikill aðdáandi Sigurrósar og hvað þá Bjarkar.

Skoðanir (2) | Bein slóð

Já sagði kjellinn.

19. maí 2008

Það er spurning að reyna að hisja upp um sig buxurnar og hefja þessa síðu upp til fyrri frægðar.
Jói, Ægir og Ég skelltum okkur í bíó um helgina á U23D, bara helvíti góð tónleika(heimildar)mynd það.
Ég hafði nú aldrei farið á svona þrívíddar mynd áður þannig að þetta var fín skemmtun, maður hálfpartinn stóð sjálfan sig að þvi að reyna að hrifsa til sín gítarinn hjá The Egde og Gefa Bono fæv.. það kannski gerist seinna bara.
Eins og alþjóð veit ekki skelltu Ægir, Bjaddni, Balli og Gugga sér í bootcamp. Ansi áhugavert það. Enda það eina sem maður heyrir núna er úúaahhh.. hhrrpmmf.. aaaa, þegar Ægir er að reyna að teygja úr sér. Maður er nú að reyna að hreyfa sig eiithvað sjálfur svo maður dragist nú ekki alveg aftur úr þeim íþrótalega séð þó að maður hangir aðallega í pottinum og gufunni, maður kannski skellir sér á lóðin við gott tækifæri einn góðan veðurdag.
Á miðvikudaginn er það svo tónleikar í höllinni með John Fogerty, gamla kallinum úr Creedence Clearwater Revival. Gamli (eldgamli) pungrokkarinn á eftir að trylla lýðinn.. alveg viss um það. Þetta verður reyndar smá maus því að úrslitaleikurinn í meistaradeildinni er fyrr um kvöldið, een þetta reddast og Man Utd verður meistari.. alveg viss um það.

Skoðanir (2) | Bein slóð

Fyrst að Elvar tók sig til

23. janúar 2008

langt síðan ég hef kíkt hér inn.. og örugglega þú líka.
Ég ætla ekkert að vera að afsaka mig neitt en það er bara búið að vera svo mikið að gera, maður er búinn að hafa lítinn frítíma, allir hættir að blogga og svona..
En fyrst að Elvar fór að blogga þá sér maður sig tylneyddann:) en ég ætla að reyna að vera öllu jákvæðari en hann.

Ég er búinn að vera alveg massa slakur að taka myndir undanfarið.
Tók mig nú reyndar til um daginn og stofnaði flickr síðu! tékkið á henni.

Það er slatti búið að ske síðan ég bloggaði síðast enda kominn góður tími síðan.
m.a.
+ Aiwaves! Snilld eins og vanalega, reyndar missti ég af slatta af hátíðinni vegna vinnu.
+ Fluttur til Ægis, ætli sé ekki hægt að segja að þetta sé ágætis sambúð. (ekki fá neinar ranghugmyndir!)
+ Kláraði skólann, ég er ekki kominn með gráðurnar ennþá því ég tek ekki prófin strax.
+ Kallinn að færa sig uppá skaftið í vinnunni. Kominn með mikla ábyrgð og alveg heimikið að gera.
+ Ennþá á sumardekkjunum.
og eitthvað fleira...
Ég ætla að hætta núna svo ég hafi eitthvað að skrifa næst.
Þú mátt endilega skella inn skoðun eða eitthvað bara svo ég viti nú hvort að einhver les þessa síðu..:)

Skoðanir (4) | Bein slóð

Airwaves á næsta leiti

12. október 2007

Jæja þá er komið að Iceland Airwaves aftur, Ægir og Bjaddni eru búnir að versla sér miða og ég sömuleiðis. þetta leggst vel í okkur enda var hátíðin algjör organdi snilld í fyrra. (ég legg fimmtíukall undir að Ægir verður handtekinn aftur, enda skuggalegur náungi á ferð).


Smá súr föstudagsfílingur fylgir með

Skoðanir (0) | Bein slóð

Nútíma Vandamál

11. október 2007

Uppfærsla frá Kærustu 7.0 til Eiginkona 1.0

Kæra tæknilega aðstoð:

Um daginn uppfærði ég úr Kærustu 7.0 í Eiginkonu 1.0. Eftir að ég hafði sett upp Eiginkonu 1.0 í tölvunni, setti forritið sig sjálft inn í öll önnur forrit í tölvunni. Það ræsir sig sjálfkrafa þegar ég kveiki á tölvunni, vaktar allar mínar athafnir og kemur sífellt með tillögur að krefjandi aukaforritum eins og t.d. Barn 2.0, þó allir viti að ÞAÐ forrit er mjög illa þróað.

Eiginkonuforritið tekur mikinn tíma og notar mikið minni. Það er ómögulegt að fá það til að víkja meðan ég nota mín uppáhaldsforrit. Gömul forrit eins og Pókerkvöld 10.3, Bjórkvöld 2.5 og Sunnudagafótbolti 5.0 virka ekki lengur. Það stóð ekkert um þetta í leiðbeiningunum fyrir forritið. Ég er að íhuga að fara bara aftur í Kærustu 7.0, en það virðist ekki einu sinni vera hægt að fjarlægja Eiginkonu 1.0. Getið þið hjálpað mér??

Kveðja, Ráðvilltur og Ráðþrota


Kæri RR,

Vandamál þitt er þekkt og mjög algengt, margir kvarta undan þessu, en þetta byggist að mestu leyti á misskilningi. Margir menn uppfæra úr Kærustu 7.0 í Eiginkonu 1.0 af því að þeir halda að Eiginkona 1.0 sé þjónustu- og afþreyingarforrit. Þar liggur misskilningurinn hjá flestum. Eiginkona 1.0 er stýriforrit, hannað til að stjórna öllu. Það er ógerlegt að fjarlægja Eiginkonu 1.0 og fara aftur í Kærustu 7.0 þegar þú hefur sett það upp einu sinni. Sumir hafa reynt að setja upp Kærustu 8.0 eða Eiginkonu 2.0, en hafa þá setið uppi með fleiri vandamál en með Eiginkona 1.0. Við mælum með því að þú haldir Eiginkonu 1.0 og reynir að gera það besta úr því sem komið er. Þú getur t.d. lesið allan kafla 6 í leiðbeiningunum, "Algengar villur".

Forritið mun keyra snurðulaust, svo framarlega sem þú tekur ábyrgð á öllum villum, óháð ástæðu og uppruna þeirra. Það besta sem þú getur gert er að fara strax í Start/Run og skrifa FYRIRGEFÐU til að stýrikerfið villuhreinsist og keyri eðlilega.

Eiginkona 1.0 er flott forrit, en krefst mikils viðhalds. Þú ættir að íhuga að kaupa meiri hugbúnað til að bæta afkastagetuna. Við mælum með Blómum 2.1, Súkkulaði 5.0 eða í neyðartilfelli Pels 2000. En þú mátt ekki undir neinum kringumstæðum setja upp Vinkona_í_mínípilsi 3.3. Eiginkona 1.0 styður ekki þann hugbúnað og það myndi sennilega gera út af við tölvuna.

Með vinsemd og virðingu, Tæknileg Aðstoð

Skoðanir (1) | Bein slóð

Update

5. október 2007

Það er mikið búið að vera í gangi síðustu misseri.

Ný vinna.
Ég sagði upp hjá Hive og hætti þar í lok ágúst og fór að vinna hjá Netheim ehf. Ég er mjög ánægður með að vera byrjaður hjá Netheim og hættur hjá Hive.
Sérstaklega er ég ánægður með að vera ekki lengur alltaf með pirrað fólk í símanum allann daginn sem þykist vita allt betur en maður sjálfur.
Það var nú samt alveg ágætt hjá Hive eða eins og maðurinn sagði; þetta starf væri frábært ef það væri ekki fyrir helvítis kúnnana

Ný íbúð hjá Ægi.
Ægir skellti sér á fasteignafyllerí um daginn og endaði með þessa líka fínu íbúð í vesturberginu í Breiðholtinu.
Hann fékk síðan lyklana afhenta fyrir nokkrum dögum og svo fékk ég copy af þeim líka þar sem maður er nú að fara að búa með kvikindinu.
Þóra verður bara að bíta í það súra ég að skuli að vera að flytja :)
Um helgina er síðan bara penslarnir mundaðir og slett hvítu á veggina.. ég kem til með að vera í fyrrverandi barnaherbergi þannig að málning er möst!

Skálkur á skólabekk
Ég fékk þá flugu í höfuðið um daginn að setjast á skólabekk.Ég skellti mér í skóla sem heitir NTV og MCSA gráðan frá Microsoft er markmiðið.
Fínasta nám þar á ferðinni en námið byggir aðallega á heimanámi og mér fynnst heldur langur tími á milli tímanna, heilar 2 vikur.

Myndir.
Ég henti inn nokkrum myndum frá afmælinu mínu og Salou ferðinni.

Skoðanir (1) | Bein slóð

Töttögöogfemm

15. september 2007

það var tólf mínútur fyrir sex að morgni fyrir nákvæmlega 25 árum sem að mamma ól lítinn dreng.
þar sem eitt leiðir af öðru og árin líða er ég orðinn 25 ára!
sjibbí!!

Skoðanir (7) | Bein slóð

Sumar punktar

15. ágúst 2007

Fór á Akureyri á 17. júní á bíladaga.. mikið stuð og mikið gaman. Var nú reyndar lítið að spá í bílunum, veiddi bara fisk í staðinn.

Ferð á Jónsmessuhátíð og Haukur steggjaður í leiðinni.. Hauki var hent í bílaþvottastöð í Borat-skýlu, látinn bonga bjór (sem hann reyndar skilaði stuttu síðar) látinn syngja í Staðarskála og síðan hent í fjósið og á hestbak.. Ball á Hofsósi síðan um kvöldið með dj Tiesto.. eða það hélt Ásgeir allavega

07.07.07 Haukur og Sæunn giftu sig. Falleg athöfn og flott veisla og ball á eftir

13 júlí til 27 júlí Salou, Spánn. 13 manna hópur og dúndrandi stuð.
Skemmtigarður, djamm, Music festival í Barcelona, djamm, önnur Barcelona ferð, ströndin, fínir veitingastaðir, djamm, Dr desibil, Pacha, brjálaðar rakvélar, djamm, froðupartý, Absinthe, djamm og kokteilar og djamm og kokteilar.
Ég tók alveg afskaplega lítið af myndum þarna úti, hendi þeim kannski inn við færitæki
Sjá minna um ferðina hér

Verslunarmannahelgin var svo róleg að hún hreyfðist ekki, enda búinn að djamma yfir mig síðustu misseri.

það er alveg fullt meira sem maður er búinn að bralla í sumar og auðivtað chilla heima með Þóru


Þetta voru nú bara grófir drættir af sumrinu. Bloggsumarfríið var langt og virkilega kominn tími á nýja færslu

Skoðanir (7) | Bein slóð

Bankamálin Á Hreinu

8. maí 2007

Ég var staddur á American Style og var að fá mér einn feitann þegar ég komst að því þegar ég ætlaði að borga að debetkortið mitt var útrunnið.
Það er eitthvað sem ég hefði aldrei búist við.. að eiga kortið alveg út gildistímann, ætli ég sé ekki búinn að týna meira en 10 kortum síðan ég fékk debetkort fyrst.
Er reyndar búinn að týna veskinu nokkrum sinnum en alltaf hefur það endað í mínum höndum aftur.(7,9,13)

Ég var að borga kröfu frá Ríkissjóði um daginn á heimabankanum, hef ekki hugmynd hvað ég var að borga samt.
Það er svosem ekkert að því að borga í ríkissjóð.. þannig lagað.
En þóknunin sem bankinn tekur fyrir að stofna kröfu er u.þ.b 200kr.
Þessi krafa var uppá heilar sex krónur !

Skoðanir (6) | Bein slóð

Blog

4. maí 2007

Blog… blogg.. plog..?
Já maður er meira að segja búinn að gleyma hvernig þetta er skrifað..
Síðast mánuður er búinn að einkennast af gríðarlegri leti og rúmlega það, er lítið búinn að fara í ræktina, lítið búinn að taka af myndum en er kominn með góða færni í listinni að “chilla”
Eða eins og Ægir orðaði það, sjá HÉR

Það er nú reyndar margt búið að ske síðan síðast.
Ég er fluttur. Þóra tók mig að sér og núna búum við saman.. í sátt og samlyndi. Ég var farinn að hanga soldið mikið með henni og það var eiginlega hálf asnalegt að vera að leigja sér herbergi og geyma bara draslið sitt þar og ekkert meir.

Dagný fermdist um daginn, til hamingju með það Dagný, og ég henti inn nokkrum myndum sem voru teknar þar.. (gjörðu svo vel Freydís og Sigurbjörg)

Skoðanir (2) | Bein slóð

Ef maður hefur ekkert að g

22. mars 2007

Tékkaðu þá á þessu-> online documentaries
Fróðlegur fjandi.

Skoðanir (2) | Bein slóð

Leiðinlegasta Sjónvarpsefn

19. mars 2007

..Er Klárlega hreinsiefna auglýsingar!
Þetta fer í mínar fínustu..

Skoðanir (7) | Bein slóð

Vorið er komið

16. mars 2007

Það er alveg magnað hvað Íslendingar eru vitlausir.
Í síðustu viku var fínt veður nokkra daga í röð. Ekkert snjóaði og hitinn vel yfir frostmarki. Sást meira að segja til sólar!
Þá er einsog það verði skammhlaup í íslenskum hausum og allir fara að segja sama orðið.. VOR!
Sá frétt í Mogganum í síðustu viku að það hefði sést einhver farfugl (man ekki hvaða fiðurfénaður það var) og svo var sérstök umfjöllun í Íslandi í dag þar sem Jón Ársæll sló því föstu að vorið væri komið. Ég held að hann fái seint inngöngu í veðurklúbbinn á Dalvík.

Henti inn nokkrum myndum í ljósmyndahornið.
Annars er allt gott að frétta af mér.

Skoðanir (0) | Bein slóð

Death from Stubbing One’s

14. mars 2007

Famous Tennessee whiskey distiller Jack Daniel decided to come in to work early one morning in 1911. He wanted to open his safe but couldn’t remember the combination. In anger, Daniel kicked the safe and injured his toe, which later developed an infection that killed him!

Moral of the story? Don’t go to work early.

(http://www.neatorama.com/2007/03/12/30-strangest-deaths-in-history/)

Skoðanir (2) | Bein slóð

Klámhundur er fæddur!

12. mars 2007

Nýr klámhundur er fæddur og hún heitir Guðbjörg H. Kolbeins.
Það hefur víst ekki farið framhjá neinum að hún var að tuða yfir klámmyndini á forsíðunni á Smáralindarbæklingnum.
Undirritaður lætur ögrandi stellingar ekki framhjá sér fara og er mikill aðdáandi rassa.
Ég gluggaði í gegnum þennan bækling og þetta var eitthvað sem mér datt ekki í hug…
Þetta er alvöru klámhundur með gjörsamlega twistaðan heila.. Ég verð bara að hrósa henni!

Skoðanir (0) | Bein slóð

Lífshættulegt að hrynja í

6. mars 2007

Þessi helgi var nú bara ágæt, Skagfirðingakvöld á föstudeginum og Tónleikar og afmælispartý á laugardaginn.
Skagfirðingakvöldið á Players var andskotans snilld, mikið drukkið og mikið dansað.
Á laugardeginum var það Tónleikar í Höllinni með Incubus. Hörkugóðir tónleikar og þrusugott band þarna á ferð.
Eftir tónleikana var haldið til Balla þar sem hann fagnaði afmælinu sínu.

Hann Ægir vakti athygli mína á því að alcohol er bara nánast bráðdrepandi.. skv. þessari frétt
frétt er LSD, kannabis efni og Ecstasy bara barnamatur miðað við áfengi.. Skál fyrir því

Skoðanir (2) | Bein slóð

Á lífi!

1. mars 2007

Einhverjir voru að spá hvort ég væri dauður.. neinei það er púls og alles
En ég held að ég hafi lifað mig aðeins of mikið inní síðustu bloggfærslu.
En hafið þið séð nippleslip í íslensku Smámáli?

Skoðanir (3) | Bein slóð

Leti !

23. janúar 2007

Leti skal það vera.
Eins og Ægir er að segja þá ætti ég að vera rétti maðurinn í verkið.

Landsliðið í Handboltanum er þokkalega að meika hlutina í Þýskalandi.
Frábær sigur í gær á Evrópumeisturunum. Gaman að fylgjast með því.
Enda var það bara að duga eða drepast hjá strákunum eftir slakan leik á móti Úkraínu daginn þar áður.
Áfram Ísland

Skoðanir (5) | Bein slóð

Viltu Hjálpa Mér Að Velja

18. janúar 2007

Voðalega er maður orðinn latur að blogga, það er ekki nokkru lagi líkt.
jæja nú er maður kominn á fullt með myndavélina að vopni og ógna hverjum þeim sem yrðir á mann, enda búinn að mynda alveg fullt af “nei nei” dýrum !

Ég fékk ágætis hugmynd um daginn að fá þig, lesandi góður, til að hjálpa mér að velja myndefni. S.s. að hafa eitthvað ákveðið þema sem ég get síðan tekið mynd af eða túlkað í myndinni.
Þessi hugmynd er eiginlega tilkominn vegna hugmyndaleysis hjá mér..
Bjó til smá uppkast af lista sem er hægt að velja úr;

1. ást
2. orka
3. fíkn
4. leiðindi
5. framfarir

Þetta er svona eitthvað til viðmiðunar, endilega láttu skoðun þín í ljós. Hvað af þessu viltu sjá á mynd. Eða hefur þú betri hugmynd?


Hún Guðný Kúld, fósturmamma, á afmæli í dag 18 Janúar. Til hamingju með daginn Guðný!!
Ég ættla ekkert að vera að nefna árafjöldan, enda er það hálfgerð regla hjá kvenþjóðinni að ef maður fer of mikið útí svoleiðis smáatriði fær maður hnúann í smettið.

Skoðanir (6) | Bein slóð

Xmas

21. desember 2006

Skellti mér á Xmas í gær. Reyndar náði ég bara endanum á þessu því ég var að vinna til 10 og rétt missti af Pétri Ben.. hefði viljað tékka á honum..
Mætti þarna um kl 10:30 og þurfti samt að borga fullt verð.. græt það nú ekkert sérstaklega því allur ágóðinn rann til Barna og unglingadeildar Landsspítalans.
Alveg þrusugóðir tónleikar. Að mínu mati voru Dr. Spock þeir sem sköruðu framúr.. eins og vanalega..

Auðvitað var nýja myndavélin prófuð, en það er nokkuð ljóst að ég þarf að læra betur á hana..
Myndirnar frá tónleikunum fylgja í ljósmyndahorninu.

Einhver umræða spratt upp hvað á að gera um áramótin..
já.. ég veit það ekki..
Hvað á að gera um áramótin?

Skoðanir (1) | Bein slóð

Til Hamingju Gamli

20. desember 2006

Þann 18. desember 1956 fæddist drengur, Steinþór V. Sigurbjörnsson. Þessi littli drengur er orðinn fimmtugur!
Til hamingju með það Pabbi. Reyndar tók hann uppá því að flýja land.. en er væntanlegur til baka þann 21. des.

Annars er það að frétta að ég var að fá mér myndavél! Og ekki bara einhverja myndavél heldur Canon EOS 400D. Þetta er alveg ótrúleg græja!! Heimurinn er þokkalega manns eigin leikvöllur í gegnum linsuna á þessari vél.
Elvar Hofsósingur var einmitt að fá sér svona vél og reyndar Ægir líka.. Reyndar er svolítið á huldu hvar hans vél er stödd í heiminum.. hún er víst á leiðinni frá Svíþjóð (hehe).

Skoðanir (2) | Bein slóð

Kominn tími til

7. desember 2006

Jæja, Nóvembermánuður árið 2006 verður betur þekktur sem blogglausi mánuðurinn hjá Viðari.
Já ég hef ekkert verið að standa mig í þessu. Það vonandi lagast þegar ég er kominn í jólaskap... (ömm.. semsagt lagast ekki??)
Ég ætla ekkert að fara að rifja neitt upp hvað ég gerði eða um hvað ég var að hugsa síðasta mánuðinn heldur bara lofa að keep it up í framtíðinni.

tjah.. jú ég ætla að reyna að rifja upp síðustu helgi.
Við nokkrir krakkar fórum í bústað í Miðhúsaskógi síðustu helgi og var það bara ágætt, mikil gleði og glamrandi gítargaul allan liðlangan tímann. helsta vesenið var að heilsunni var farið að hraka á laugardeginum en það var seinnitímavandamál.

Henti inn nokkrum myndum frá ferðinni sem hún Ásta tók.

Skoðanir (0) | Bein slóð

Útlendingar á Íslandi

1. nóvember 2006

Þeir sem á annað borð fylgjast með fréttum hafa ekki farið varhluta af umræðu um nauðganir undanfarið.

Nýjasta dæmið er nauðgunartilraun og í kjölfarið hrottafengin líkamsárás á skemmtistaðnum Victor's.
Það eitt og sér að nauðga einhverri stelpu er svo viðbjóðslegt að mér dettur ekkert orð í hug til að lýsa því.. hvað þá ef nokkrir taka sig saman til að yfirbuga fórnarlambið og skiptast síðan á..

Mikil umræða hefur sprottið upp í þjóðfélaginu sem snýr að innflytjendamálum í kjölfar þessarar fréttar.
Sumir harðorðari en aðrir í garð útlendinga.
Með þvi að smella HÉR og HÉR má lesa umfjöllun á vísir.is (lesið kommentin)

Það hafa allir skoðun á þessu máli og ég ætla að koma minni hér með á framfæri:

Í þessu tilviki voru þessir menn kallaðir í skýrslutöku eftir þetta og síðan sleppt! ....ha?
Það þarf engan eldflaugavísindamann til að sjá að þessir menn eru stórhættulegir umhverfi sínu.
Heyrði í Reykjavík síðdegis, á Bylgjunni, viðtal við þann sem hafði umsjón með rannskókninni, hann sagði að það verði að passa uppá rétt þessara manna! ....ha?
(þetta sem ég var að skrifa hljómar eins og lélegur brandari)
Hvaða rétt hefur sá maður sem hagar sér svona??
Það er löngu vitað mál að Íslenska réttarkerfið stendur ekki undir nafni og dómarar gera sig nánast að fífli þegar þeir kveða upp "dóma"
Einn og einn mánuður á stangli í gæsluvarðhaldi er það mesta sem verstu glæpamennirnir á íslandi fá.


Útlendingar hafa hópast til Íslands undanfarin ár nær alveg eftirlitslaust. Engin krafa gerð á læknisskoðun sem hlýtur að skjóta skökku við því flest þetta fólk er að flýja fátækt og volæði í heimalandinu.
Sem betur fer er flest þetta fólk harðduglegt og vinnur myrkrana á milli fyrir smá klink í tímakaup - ekkert nema gott um það að segja.
En inn á milli leynast rotin epli.

Hvað er til ráða??

Lausn nr 1

Útlendingamálin í pólitíkina.
Ríkisstjórnin og bara allir stjórnmálaflokkarnir hafa hingað til náð að humma þessi mál til hliðar.
Ég skora hér með á pólitíkusa landsins að gera eitthvað í þessum málum, koma með einhverja stefnu í þessum málum sem er landanum til geðs.
T.d. takmarka með einhverjum hætti strauminn til landsins t.d. að fara bresku leiðina og banna öllum sem hafa hlotið dóm fyrir eitthvað alvarlegt að koma til landsins.

Lausn nr 2

Afnema öll lög og reglugerðir þegar svona útlendingahyski á í hlut.
Baseball kylfur, hnúajárn og hnífar af ýmsum gerðum verði notað á svona lið.


Lausn númer 2 er ekkert voðalega siðmenntuð en ef maður lítur á málið í heild sinni (og skoðar kommentin á tenglunum hér að ofan) þá er ekki langt í að sú leið verði farin.

Ég lít ekki á sjálfan mig sem rasista en skoðum mín á útlendingamálum hefur alltaf verið sú að ef þetta lið er ekki í vinnu og er ekki að aðlagast Íslensku þjóðfélagi getur það bara hunskast heim til sín.
Tala ekki um þá sem eru byrði á Íslensku þjóðfélagi...

Ég segi að það eigi að framselja þessa menn til heimalandsins þar sem þeir geta fengið viðeigandi refsingu.
Kallið mig rasista en þessa dagana styð ég lausn nr 2.

Skoðanir (8) | Bein slóð

Gullfiskaminni = Íslending

28. október 2006

Jæja þá er maður búinn að jafna sig eftir Airwaves.

Það er alltaf jafn gaman að fylgjast með Íslendingum þegar það byrjar að snjóa á haustin.
Flestir hafa heyrt þegar er verið að gera grín að gullfiskum og þeir séu með lélgt minni,
t.d. þegar þeir synda í fiskabúrinu og sjá kastalann (sem er skraut í fiskabúrinu) og svo synda þeir einn hring og sjá aftur kastalann og skilja ekkert í því og svo synda þeir annan hring, nei kastali! Hvaðan kom hann??

Íslendingar eru svipaðir. Á hverju hausti skilur enginn neitt í neinu þegar allt í einu byrjar að snjóa.. jafnvel stálpað fólk sem er búið að upplifa 40 til 50 íslenska vetur.. Við ættum kannski að spá í því að það land sem liggur okkur nærst er Grænland þar sem 1,755,637 km² er bara snjóþekja allt árið !

Annars finnst mér persónulega hálf skítt að veturinn hafi komið á undan sumrinu (eða hvort það hafi bara gleymst)

Núna er Bjaddni bara orðinn einn af “strákunum okkar”.
Kaddlinn orðinn Celeb og gerði sér lítið fyrir og skellti sér í myndatöku á Airwaves hátíðnni og setti upp gríðarlegan stríðssvip.
Með því að smella HÉR má sjá myndina sem birtist af honum í Séð og Heyrt (opna númer tvö í blaðinu)

Iceland Airwaves var mjög vel heppnuð. Reyndar hélt ég varla vatni yfir þessu.
Góð og þétt dagskrá og verulega góð bönd létu sjá sig.
Þó fór ekki allt á besta veg yfir þá helgi, bæði myndavélin mín og veskið mitt týndust yfir helgina. (nú veit ég að mamma glottir við tönn, að ég hafi týnt myndavélinni. Alltaf er hún að gera grín því 2 myndavélum hefur verið stolið frá mér).

En viti menn! Á mánudaginn poppaði Eyþór upp á msn “hey! Ég er með myndavélina þína!” Og mánudagsmorgun fékk ég símhringingu frá Iceland tourist center, þá höfðu starfsmenn þess fundið veskið mitt á gangstéttini fyrir utan! Með öllum kortum og meira að segja þúsundkall sem var enn á sínum stað.
Heppinn?

Skoðanir (1) | Bein slóð

Airwaves Maður !

20. október 2006

Jæja þá er Iceland Airwaves komin á fullt skrið.
Alveg magnaður fjandi sem þessi hátíð er! Ég, Ægir og Bjaddni splæstum í miða og sjáum sko ekki eftir því.
Mjög góð og þétt dagskrá og virkilega góð bönd sem eru að glamra þarna.

Á miðvikudagskvöldið var haldið á Gaukinn. Dikta, Telepathetics, We are scientists og Cynic Guru sem komu, allavega mér, skemmtilega á óvart. Fínasta kvöld.

Fimmtudagskvöldið var ekki síðra, kíktum á Listasafn Reykjavíkur og stukkum í smástund yfir á Nasa á meða Lay low spilaði þar. Listasafnið er magnaður tónleikastaður (skrítið að það skuli ekki verið haldið meira af tónleikum þar). Mugison, Klaxons og fleiri stigu á svið og léku listir sínar á hljóðfærin fyrir trylltan lýðinn.

Þegar Mugison var ca. hálfnaður með prógrammið sitt tók ég eftir því að Ægir var horfinn, spáði svosem ekkert meira í því. Hélt að hann hefði stokkið á kamarinn eða eitthvað.
En nei, Kallinn var handtekinn, settur í járn, rúllað uppá stöð og látinn tæma vasana og svo bara sleppt. Voða skrítið mál sem ég botna ekki og hvað þá Ægir. Reyndar var hann að reyna að klína þessu eitthvað á okkur Bjaddna, hélt að við værum að fíflast í honum… Held að hann sé ennþá að bíða eftir að einhver stökkvi fram og segir TEKINN !

Henti inn nokkrum myndum frá Airwaves, endilega kíkið á þær

Skoðanir (1) | Bein slóð

Má bjóða þér gúrku ?

7. október 2006

Það er voða lítið búið að ske á þessum síðustu og verstu tímum.
Meira að segja hjá fjölmilðlum er gríðarlegt gúrkuhallæri.

Ég meina.. hversu lítð er að ske í heiminum þegar Þetta er stór frétt á mbl.is

Eða að visir.is komi með "frétt" sem allir ættu vita

Annars er voða lítið búið að ske.. að fara á djammið eru varla tíðindi lengur.

Jú, Moli sendi elskuna sína í aðgerð til að fá stærri bobbinga


Ég henti líka inn nokkrum myndum

Skoðanir (4) | Bein slóð

Alveg Magnað

18. september 2006

Jæja þá er Magni kominn heim eftir mikla svaðilför í henni Ameríku og var hylltur eins og þjóðhetja í Smáralind að viðstöddum átta þúsund manns.
Kaddlinn líklega alveg örþreyttur eftir mikið álag og ferðalög fær gjöf frá flugfélagi… flugfar að eigin vali, hann hefur örugglega bara andvarpað..
Og jú Ríkisstjórn Íslands sá sóma sinn í því að taka á móti honum og gefa honum gjöf sem sem þjóðhetju sæmir… bók um Kjarval!

Annar bar ekki til tíðinda um helgina nema kannski að það var feiknar djamm á afmælisdaginn og gríðarleg þynnka í kjölfarið og Ægir flaug til Spánar með engum fyrirvara... fíbblið :þ

Myndirnar frá helginni fylgja í ljósmyndahorninu

Skoðanir (2) | Bein slóð

Árinu Eldri

15. september 2006

Úff hvar endar þetta..
Það eru heil 24 ár síðan mamma afrekaði það að koma mér í heiminn, takk fyrir það mamma !

Þetta er ágætisdagur hingað til, byrjaði á því að sofa duglega yfir mig (þangað til vinnan hringdi og vakti mig) og svo var ég að tala við X-ið 977 og þeir ætla að vera rausnarlegir við mig eftir að þeir birtu mynd, sem ég tók, inná heimasíðunni sinni.
Gaman að sjá hvað þeir eiga eftir að gera fyrir mig ;-)

Skoðanir (4) | Bein slóð

Fjarlægðin gerir fjöllin..

8. september 2006

Spurning að skella sér í göngur og réttir.. já það er spurning.
Reyndar ef ég rifja upp hvernig þetta var í fyrra þá ætti manni ekki að langa aftur, var búinn að labba í klettum og lausu grjóti í ca. tvo og hálfan tíma, koma mér í sjálfheldu (losaði mig úr því með að renna mér bara niður klettana og vona það besta), kominn með skurð á báðar hendur og orðinn gjörsamlega örmagna áður en ég sá fyrstu rolluna.

En það er bara einhver sjarmi við að fara í göngur og réttir þannig að ég held ég skelli mér bara.

Annars er Magni (okkar) alveg að krakka skítinn! En versta útkoman fyrir hann þegar hér er komið við sögu er að hann ynni þessa keppni, vonandi tekur hann bara túr með húsbandinu.

Rússi einn lagði leið sína til Íslands í vikunni, Nikolai Ivanov að nafni, og fór á kostum í leik landsliðs Íslands og rauðra gúmmíkalla með kartöflur í hálsinum.
Einkunnar orð rússans og gúmmíkallana hefur líklega verið;

Þar sem tveir leikmenn koma saman, þar er aukaspyrna !

Skoðanir (4) | Bein slóð

Fámálir Íslendingar á 69.i

27. ágúst 2006

Þegar þetta er skrifað þá eru rúmlega tveir sólarhringar síðan tengill inná síðuna mína birtist inná www.69.is
Tengillinn vísar beint á inná mynd sem ég tók á Arnarhóli á menningarnótt.
Þetta er nokkuð athyglisverð mynd, um er að ræða einn strák og tvær stelpur í svokölluðum "trekant" ...förum ekki nánar útí það.

Til að gera langa sögu stutta þá hefur þessi tengill náð nokkrum vinsældum og u.þ.b. 10.000 manns smellt á tengilinn og séð þessa mynd (þegar þetta er skrifað).
Ég var reyndar svolítið á báðum áttum hvort ég ætti að henda þessari mynd á netið eða ekki. Þegar mér varð fyrst ljóst að þessi mynd hafði ratað þangað inn bjóst ég við sterkum viðbrögðum og ætlaði að kippa henni út hið snarasta, en annað hefur komið á daginn.
Enginn hefur sagt neitt... ekki eitt einasta komment!

Come on people ! Þið getið betur en þetta er það ekki?
Þetta skiptist svona nokkurn veginn til helminga þ.e.a.s þeir sem smella á tengilinn, sjá myndina og fara síðan til baka og svo helmingur sem vafrar aðeins um síðuna.
Ég vill fá að heyra hvað ykkur finnst.. margir halda kannski að þetta sé feik en svo er ekki. Það voru einmitt nokkuð háværar stunur sem að létu mig vita af þessu!
Hvað segið þið greddupöddur sem eru að skoða þetta, Fór ég yfir strikið? Ísland er jú pínkupons land þar sem allir þekkja alla liggur við. Ætti ég að taka þessa mynd út?

Látið mig vita hvað ykkur finnst, einhverstaðar hljóta jú mörkin að liggja.

Skoðanir (27) | Bein slóð

Góð Menning

23. ágúst 2006

Menningarnóttin var skrambi góð bara.
Við nokkrir gaurar byrjuðum kvöldið á að fara út að borða, á Tapas.
Pantaðir voru nokkrir Suður Amerískir smáréttir sem voru nokkuð öðruvísi en maður á að venjast þegar maður fer út að borða.
Það heppnaðist mjög vel, maturinn mjög góður og þjónustan yfir meðallagi.
Síðan lá maður á meltunni í "koníakstofunni" og sötraði kaffi og koníak (segir sig nokkuð sjálft).

Þá var alþjóðlegu menninguni lokið og Íslenska menningin tók við, rölt um miðbæinn og drukkið sem enginn væri morgundagurinn.
Það eitt og sér getur ekki endað vel.. allur pengingur kláraðist, síminn týndist og þynnka laaangt fram eftir viku.
Spurning að endurskoða þessi endalausu pointless fyllery..

Annars vil ég þakka strákunum fyrir fínasta kvöld.

Skoðanir (3) | Bein slóð

Tískan... það er skrítið f

14. ágúst 2006

Allir vita hvað 80’s tímabilið var hrikalega hallærislegt, hárið greitt í einhverja vængi og allir í æpandi áberandi fatnaði. Og svo var það tónlistin… úff

En hvað með 90’s tímabilið?
Við skulum kíkja á það

Þegar maður lítur til baka þá er nokkrir hlutir sem standa alveg sérstaklega uppúr.

Kraftgallar!
Allir unglingar áttu Kraftgalla, jújú mjög góður galli sem hélt vel hita en ekkert voðalega flott, eiginlega bara ljótur “tískufatnaður”
Það hlýtur að hafa verið mjög kúl gæi sem hefur ákveðið að þetta verði töff.

Körfubolta myndir !
NBA körfuboltinn var alveg hrikalega vinsæll, Jordan og Pippen voru aðalmálið.
Körfubolta-mynda-æðið reið yfir með miklum þunga og í öllum skúmaskotum sá maður krakka vera að bítta á myndum. Ég man að ég átti yfir 1.000 myndir og djöööfull var ég flottur gaur!

Baywatch !
Kl: 19:00 á laugardagskvöldum var þorri landsmanna límdur við skjáinn og glápti á Hasselhoff og félaga.
Pamela Anderson, Yasmin bleeth, Erika Eleniak, Carmen Electra, Donna D’Ericco og aðrar brjóstagóðar trekktu vel! Sérstaklega karlmenn !

Jójó !
Á tímabili var enginn maður með mönnum nema að eiga a.m.k. eitt eða helst nokkur jójó,
Keppt var um allt land á ólíklegustu stöðum í jójó æfingum m.a. að viðstöddum sjálfum heimsmeistaranum frá Brasilíu.

G-Shock úr
Rosalega stór með flottu ljósi. Gellurnar voru líka farnar að ganga með baby G-Shock úr sem voru mjög krúttleg.

Fleiri hlutir: Russel peysur, Stussy föt, Risa snuð og X-Files

Tónlist:
Hljómsveitir eins og Ace of Base, Blur, Pulp, Toni Braxton, Wigfield, Backstreet Boys, 2unlimited og auðvitað Spice Girls voru að gera góða hluti á þeim tíma.

Reif tónlistin náði miklum vinsældum á tímabili. Hver man ekki eftir geisladiskum eins og Reif í sundur, Reif í runnan og fleirum í þeirri seríu. Alveg ótrúlega gaman að flippa á skólaböllum með þessa geisladiska í dúndrandi botni.

Jæja, þetta var mjög stutt ágrip á tíðaranda tíunda áratugsins (ég gæti líklega haldið lengi áfram).
(ef þú mannst eftir fleiri hlutum sem sköruðu meira fram úr en annað endilega kommentaðu um það)

Í stuttu máli sagt þá má segja að allir hafi verið að eltast við að vera eins klæddir og eiga eins hluti og helst nokkra svoleiðis, svolítið öðruvísi en í dag þegar allir eru að reyna að vera einstakir.
Þá er bara spurningin þegar maður rifjar upp þennan tíma í heild sinni.. Var maður kúl eða var maður sorglegur??

No no, no no no no, no no no no, no no there’s no limit !

Skoðanir (8) | Bein slóð

Er einhver í bænum?

4. ágúst 2006

Það getur verið súrt að hanga heima um verslunarmannahelgi.
Allir eru úti á landi í Survivor leik og drekka óteljandi tegundir af vímugjafa.
Þeir sem eru í bænum og langar að djamma, látið í ykkur heyra!

Skoðanir (0) | Bein slóð

Góður Matur,Afmæli og Til

24. júlí 2006

Valur og Una eru snilldar kokkar! það verður ekki af því skafið.
Þau tvö buðu Ægi og mér í mat á föstudagskvöldið og grilluðu einhverjar lærisneiðar, útbjuggu fyllta sveppi og hvítlauksbrauð.
Eftir þennan massa góða mat var bara chillað og gónt á sjónvarpið og spilað buzz, alveg glatað að spila við Unu í þessum leik...

Á laugardaginn var góða veðrið notað í að sjæna bílinn, ætlaði reyndar uppí bústað til Hildu og co. en það verður að bíða betri tíma.. þegar ég á pening í göngin.

Um kvöldið hélt hann Jónki uppá tvítugsafmæið sitt á Kaffi Reykjavík, þar var trallað fram á rauða nótt. Ísbarinn á þessum stað er nokkuð merkilegt fyrirbæri, mæli með honum
Eftir að allur bjórinn kláraðist sem var í boði í afmælinu var haldið á Hverfisbarinn. Þegar þangað var komið var staðurinn gjörsamlega tómur, svona tíu manns inná staðnum og þá er starfsfólkið talið með. En á svona korteri troðfylltist staðurinn, nokkuð furðulegt að fylgjast með því.
Myndir frá afmælinu og matnum hjá Val fylgja í ljósmyndahorninu.

Sunnudagurin var sannkallaður þynnkudagur.. eins og alla sunnudaga..

Systir mín hún Hilda Björk Línberg Snorradóttir átti afmæli í gær, sunnudaginn 23 júlí! Til Hamingju systa !

Skoðanir (1) | Bein slóð

Bjössi í stuði á Akureyri

19. júlí 2006

Á bíladögum á Akureyri var ýmislegt brallað, Þó er mjög eftirminnilegt hvað Bjössi skemmti sér vel með eindæmum.
Ég setti inn 2 myndir af Bjössa frá þessari helgi sem Bjaddni tók af honum á leiðinni á djammið í bænum. ..ég vona að hann drepi mig ekki fyrir að sýna þessar myndir..

Skoðanir (2) | Bein slóð

Góð Byrjun Hjá Zidane

11. júlí 2006

Mikið hefur verið rætt og skrifað um úrslitaleik HM í Þýskalandi nú á dögunum.
Ítalir stóðu uppi sem sigurvegar.. því miður segi ég því að ég er ekki aðdáandi Ítalskrar knattspyrnu, stífur varnarleikur og leikaraskapur finnst mér hafa einkennt ítalska boltann undanfarin ár. Þeir ættu að hætta þessu og fara í klippingu!
Zinedine Zidane brilleraði í leiknum og trompaði allt í lokin með hörku skalla. Margir segja að þetta hafi verið sorglegur endir á ferlinum hjá einum besta knattspyrnumanni heims.
Ég er ekki sammála og kýs að kalla þetta góða byrjun, einn itali liggur.. tíu eftir!



Það getur verið spaugilegt að fá tölvupóst í innhólfið hjá sér sem átti að fara annað.
Ég fékk póst fyrir nokkrum mánuðum sem ég er ekki viss um hvert eða til hvaða lands átti að fara.. eða hvaða stjörnukerfis.


“gott og vel, jeg haetti sifrinu sem er liklega tilkomid af tvi ad jeg saman textann a einum degi og nittpikkadi i honum nokkrar minutur a dag fyrir svefninn sem er hressilegt ferli fyrir annars vandvirkan mann. I dag er gott vedur og allir a strondinni. Jeg heyrdi ad Tor hefdi fitnad og maeli ekki med kartoflusalatsati og skiladu tvi til hans eda fleygdu i hann musli, ciao <):) “

Þeir sem vita um hvað maðurinn er að tala fá prik!


p.s. henti inn nokkrum myndum í ljósmyndahornið sem ég tók fyrir norðan

Skoðanir (0) | Bein slóð

Fríið búið

4. júlí 2006

Þá er fríið búið og maður mættur til vinnu.
Síðasta vika er búin að alveg ótrúlega afslöppuð í sveitasælunni.
Lítið sem ekkert GSM samband og bara RÚV í boði í sjónvarpinu, fínt að fara úr stressinu í borg óttans og slappa af… ekki það að ég sé að deyja úr stressi að eðlisfari en það er bara svo gott að gera ekki neitt og hvíla sig á eftir.

Næstu vikurnar er bara vinna framundan enda allt að verða vitlaust í vinnunni.
Og auðvitað glápa á HM

Sumarið er tíminn og það er spurning hvort maður eigi að taka allar helgarnar með trompi það sem eftir lifir sumars… spurning.. enda fullt af litlum útihátíðum útum allt land um hverja helgi.

Skoðanir (1) | Bein slóð

Mögnuð Jónsmessuhátíð

26. júní 2006

Jónsmessuhelgin á Hofsósi um nýliðna helgi var vægast sagt alveg frábær.
Mjög gott veður var alla helgina og mætingin hefur aldrei verið betri.

Á föstudaginn var fólk að tínast í bæinn fram eftir degi þannig að það var bara slappað af í blíðunni.
Um kvöldið brunuðum við Ægir, Binni, Elvar Jói, kiddi og Bjössi útí Hraun, Binni hafði planað að fara á snjósleðanum útá stöðuvatnið sem er við sveitabæinn.
Þegar á staðinn var komið skall á alveg bjálað logn þannig að sleðinn var græjaður og úr þessu þá var ekki bakkað með þetta.
Planið hjá honum var að fara útá vatnið, taka hring uti á vatninu og fara á sama stað í land aftur. Það tókst svona þokkalega hjá honum, reyndar náði hann ekki hringnum heldur varð hann að stoppa í fjörunni hinu meginn og taka af stað þaðan aftur. Það tókst og þetta var allt saman alveg massa töff hjá honum.
Eftir það var brunað útí Hofsós og hellt í sig.
Hópurinn hélt á Sigtún, sem er barinn í Hofsós, og þar var djammað og dansað þangað til staðurinn lokaði.
Venjulega þá fer fólk að sofa eftir að barinn lokar, eða fer í eftirpartý, en hópurinn sameinaðist um að fara í fótbolta á sparkvellinum.
Fótboltinn var hin mesta skemmtun, svona allaveg rétt á meðan á honum stóð.
Reglur voru algjört aukaatriði og það var tæklað eins og enginn væri morgundagurinn, Binni fór þar fremstur meðal jafningja.
Þegar ég vaknaði komu í ljós alveg hellingur af marblettum og opið sár á leggnum.

Laugardagurinn var tekinn snemma.
Um hádegisbil var mæting í grunnskólann þar sem nokkrir árgangar, sem voru í skólanum í gamla daga, hittust.
Byrjað var á því að skoða gömul myndaalbúm og gamlir tímar rifjaðir upp. Í stað þess að halda sig við upphaflega dagskrá á þessu bekkjarmóti var í snatri ákveðið að fara uppá knattspyrnuvöll og taka þátt í fótboltamóti.
Við rétt svo náðum í 7 manna lið og Ægir var vatnsberi eða öllu heldur bjórberi.
Við stóðum okkur eins og hetjur að mínu mati og höfnuðum í fjórða sæti. Enda vorum við átta í liði, dómarinn var með okkur í liði.
Eftir boltann fór reunion-hópurinn í ratleik, einskonar Amazing Race Hofsós. Þar var hlaupið um allan bæinn og okkrar þrautir voru leystar m.a. bjór drukkinn með trekkt, dekkjum raðað, leitað að eggi og það síðan spælt, farið á hestbak og kókosbollu kappát.
Fyrir ballið um kvöldið var hittingur heima hjá Ægi. Þar var sungið og trallað fram eftir kvöldi og síðan haldið áleiðis á ballið.
Ballið var vel heppnað, hljómsveitin Von spilaði og stóð vel fyrir sínu, eftir ballið var fjöldasöngur úti á tröppum þar sem Rúnar splilaði á gítar og það myndaðist góður hringur og mikil stemning.

Sunnudagurinn fór aðallega í það að vera þreyttur, bæði líkamlega og andlega.
Skemmtileg helgi senn á enda og gestir helgarinnar að tínast heim á leið.
Ég ætla hinsvegar að vera eitthvað áfram á norðurlandinu í faðmi afa og ömmu í sveitinni.
Myndirnar frá helginni fylgja í ljósmyndahorninu

Skoðanir (3) | Bein slóð

Myndirnar komnar inn

20. júní 2006

Myndir frá frábærum Bíladögum á Akureyri eru loksins komnar inn.
Sjón er sögu ríkari
Jónsmessan er næst!

Skoðanir (0) | Bein slóð

Allt að gerast

16. júní 2006

Já allt að fara að gerast!
Næstu vikurnar eru fullar af fjöri svo ekki sé nú meira sagt. Þar má m.a. nefna Bíladaga á Akureyri, Jónsmessuhátíð á Hofsósi og í kjölfarið siglir svo ættarmót.
Ég er á leiðinni í sumarfrí og verð líklega fyrir norðan allann tímann enda kominn með uppí háls af Reykvískri sumarveðráttu, maður sér sólina bara í bíómyndum núorðið.

Það er orðinn fastur liður í vinahópnum að skella sér á Bíladaga á Akureyri yfir 17. júní helgina og þykjast hafa vit á bílum, en þó fer mest fyrir gamaldags drykkjuskap og almennum skrípalátum.
Vinahópurinn ætlar að skunda á Hofsós fyrst, taka tal af fjölskyldu Ægis og sníkja gistingu yfir eina nótt.
The Hawk tók bústað á leigu, sem er b.t.w. nánast í miðbæ Akureyrar, og þar verður chillað, grillað og væntanlega verður það miðpunktur alls þess sem ekki gerist í þessari ferð. ..Útrætt mál.

Vikan eftir það verður líklega bara rólegheit í faðmi afa og ömmu í sveitinni.

Helgin 24.- 25 júní er hin árlega Jónsmessuhátíð á Hofsósi og þar má enginn láta sig vanta.
Fyrihugað er risa-reunion hjá nokkrum árgöngum sem voru í skóla á Hofsósi, ef þú ert ekki búinn að skrá þig til þáttöku eða veist ekki um hvað ég er að tala smelltu þá hér.

Yfir í aðra sálma.
Ég lýsi hér með eftir álfinum sem er alltaf að stela af mér sokkum í þvotti! Hver kannast ekki við þann fjanda að það vantar a.m.k einn sokk eftir hvern þvott?!
Við eftirgrennslan á netinu kom í ljós að engin rannsókn hefur verið gerð á þessu (sennilega allt annað í þessum heimi hefur verið rannsakað m.a. naflakusk og samkynhneigð meðal drauga!).
Þá vitið þið hvað er á óskalistanum fyrir næstu jól.

Gleðilegan þjóðhátíðardag!

Skoðanir (2) | Bein slóð

Veisla Í Mánuð

8. júní 2006

Þegar þetta er skrifað þá er innan við sólarhringur í að HM veislan hefjist.
Á meðan keppninni stendur er ætlunin að hittast í koníakstofunni heima hjá Jóa þegar leikirnir eru í sjónvarpinu og þykjast hafa vit á fótbolta.
Það eru ekki mjög skiptar skoðanir á því hverjir munu standa uppi sem sigurvegarar í þessari keppni, Brassarnir eru sagðir taka þetta. Þó eru nokkur lið sem þarna koma til greina. Þar má m.a. nefna Frakkland, Argentína, Þýskaland og svo hefur undirritaður tröllatrú að Enska liðið geri góða hluti.
Nú þegar HM fer að hefjast fer margt úr skorðum í heiminum og líka hér á Íslandi.

Skjár einn hefur breytt út af vanalegri dagskrá og er farinn að sýna Melrose place og Beverly Hills. Slæm breyting það því leiðinlegri þætti hef ég ekki séð, þetta er kannski ágætt fyrir stelpurnar..

En næsta heila mánuðinn er HM málið.
Spáin mín er sú að Brassarnir taki þetta eftir úrslitaleik við Frakkana, 2-1 fyrir Brasilíu
Hvernig heldur þú að þetta fari??

Skoðanir (5) | Bein slóð

Fyrsta færslan

30. maí 2006

Já Fyrsta færslan, á þessari síðu er ætlunin að birta það sem rennur í gegnum hugann hverju sinni, tuða um það sem fer í taugarnar á mér, segja hetjusögur og birta myndir því til staðfestingar.

Síðasta helgi var viðburðarrík, vinna á laugardag, brunað í bústað um kvöldið eftir vinnu, þar sem Íris, Logi, Heiða, Óli og Ásta voru í bústað sem foreldrar Írisar eiga.
Þennann stutta tíma sem ég var þar var þó heilmikið fjör, allt sem góð bústaðar ferð þarf að hafa, singstar, fullt af spilum, hoppukastali (sem kom á óvart) og einfaldlega hörkustuð!
Ég vil benda á að þó að undirritaður hafi farið snemma að sofa þá hafði ég fulla ástæðu til þess!

Á sunnudagsmorgunn var vaknað aðeins of seint þannig að það var keyrt gjörsamlega eins og druslan dró í bæinn til að mæta í vinnu.
Sunnudagskvöldið var hálfgert laugardagskvöld þannig að það var aðeins kíkt á lífið í bænum, það var samt minniháttar.

Kristel Assa Adolfsdóttir átti afmæli í gær, mánudaginn 05/06. 19 ára gella!
! til hamingju með daginn Kristel !

Skoðanir (1) | Bein slóð